Marteinn Sverrisson hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá PREMIS. Marteinn er með mikla reynslu sem stjórnandi í upplýsingatækni og hefur m.a. stýrt upplýsingatæknimálum Vegagerðarinnar, KPMG og Kópavogsbæjar. Marteinn er menntaður í tækni- og viðskiptafræðum, með BSc gráðu frá SDU í Danmörku og MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Ráðningin er liður í aukinni áherslu PREMIS á ráðgjöf í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á opinbera aðila. PREMIS vill með þessari áherslu mæta aukinni eftirspurn eftir ráðgjöf á ýmsum sviðum upplýsingatækninnar.

Ríkisstofnanir standa margar hverjar frammi fyrir stórum verkefnum m.a. innleiðingu Office 365 og margvíslegra annarrar skýjavæðinga. Einnig eru sífellt að bætast við auknar kröfur tengt margvíslegum regluverkum t.d. GDPR og NIS auk þess sem nýbirt drög um stefnu ríkisins í upplýsingaöryggi gerir ráð fyrir innleiðingu ISO27001 staðalins hjá öllum ríkisstofnunum innan tveggja ára.

Við bjóðum Martein hjartanlega velkomin til PREMIS. Hann er með tölvupóstinn marteinn@premis.is og er sérstaklega hrifinn af því að fá tölvupósta á milli 8 og 9 á morgnanna 🙂