Helstu upplýsingar

Útlit Útlit
PREMIS
Forritun Forritun
PREMIS
Fyrir Fyrir
Örninn hjól
Vefur Vefur

Vefverslun í
nýjan búning

Eftir að hafa verið með vefverslun í CaraWeb sem er eldra CMS kerfi frá PREMIS í 3 ár og hafa vaxið sem vefverslun var kominn tími á að taka vefinn í gegn. Næsta skref var WordPress með WooCommerce en PREMIS hefur sett upp margar slíkar lausnir undanfarin misseri. Þessi lausn hefur reynst mjög vel og er ofarlega meðal þeirra lausna sem við mælum með við gerð vefverslana í dag.

Örninn léttara útlit

Nýr vefur &
léttara útlit

Við vildum gefa vefnum léttara útlit í yfirfærslunni og var ákveðið að notast við þemalausn í grunninn sem PREMIS sá um að stilla af. Hugmyndin var að leyfa myndunum og hjólunum að njóta sín og hafa mest áhrif á heildarmynd vefsins. Hugað var sérstaklega að því að allar aðgerðir væru einfaldar og hjálpuð notendum vefsins að leita upplýsinga og framkvæma kaup í framhaldinu ef þeir vildu.

Örninn greiðslumátar - Síminn Pay

WooCommerce &
greiðslumátar

Í dag skiptir miklu máli að huga að greiðsluleiðum vefsíða og þá sérstaklega þegar kemur að öryggi og meðferð persónuupplýsinga. Einn af kostum WooCommerce er að margar tilbúnar lausnir eru til fyrir greiðslumáta. Einn af greiðslumátum sem var settur upp á orninn.is var Síminn Pay. Síminn Pay bíður notendum meðal annars að dreifa greiðslum yfir nokkra mánuði og getur því verið góður kostur þegar einnig er boðið upp á dýrari vörur.

Góð upplifun í
öllum tækjum

Auðvitað var hugsað til þess að upplifunin væri sem góð í öllum tækjum. Þar sem að verslun á netinu er allt að aukast þarf vefurinn að virka vel í öllum tækjum. Sérstaklega er umferð um vefsíður og vörukaup á netinu að aukast sérstaklega hratt í farsímum og því þarf að hugsa alla uppsetningu út frá smærri skjám.