Helstu upplýsingar
Árleg vitundarvakning
& söfnunarátak
Á hverju ári stendur Kraftur fyrir vitundarvakningu og söfnunarátaki. Um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju með krabbamein. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Stuðningur
í verki
PREMIS vildi sýna stuðning í verki í þessu mikilvæga átaki sem Kraftur stendur fyrir. Við gerðum það með því að gefa vinnuna við uppsetningu á vefnum þeirra.

Frábært samstarf
Við uppsetningu á vefnum áttum við frábært samstarf með Hvíta húsinu og Krafti.
Allt myndefni og markaðsefni fyrir vefinn kom frá Hvíta húsinu. Útlit vefsins var gert í samráði við Hvíta húsið og Kraft.

Réttu tólin
Til tryggja hraða og skilvirka uppsetningu á vefnum var notast við Asana og Microsoft Teams. Með þessu var hægt að úthluta verkefnum og eiga hröð og góð samskipti.
Viltu vinna með okkur?
Við erum alltaf klár í ný og spennandi verkefni. Ekki hika að hafa samband ef þú ert með hugmynd sem vantar að gera að veruleika. Það kostar ekkert að taka spjallið.